Mars media
Skilmálar
Skilmálar MarsMedia ehf.
Markmið og umfang þjónustu
MARS MEDIA ehf. („MARS“) þjónustar viðskiptavini sína („Viðskiptavinur“) samkvæmt gildandi samningum, tilboðum og/eða verkbeiðnum sem gerðar eru hverju sinni. Með samþykkt tilboðs, undirritun samnings eða með því að nýta þjónustu MARS telst viðskiptavinur hafa samþykkt skilmála þessa, nema um annað sé sérstaklega samið skriflega.
Auglýsingareikningar og aðgangur
Allir auglýsinga reikningar, þar á meðal en ekki takmarkað við Google Ads, Meta Ads, samfélagsmiðla reikninga og aðra reikninga tengda markaðskerfum, eru í eigu og á ábyrgð viðskiptavina. MARS hefur eingöngu aðgang og afnot af slíkum reikningum í þeim tilgangi að sinna umsaminni þjónustu, í sumum tilfellum fær viðskiptavinur afnot af auglýsingareikningum MARS gegn umsömdu þóknunargjaldi og í þeim tilfellum er auglýsingareikningur í eigu MARS. Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á: Greiðslum til auglýsinga veitna, Skilmálum og reglum viðkomandi kerfa, Lögmæti og innihaldi auglýsinga, Öryggi og stjórnun reikninga.
Viðskiptavinur skuldbindur sig til að virkja tveggja þátta auðkenningu (2FA) á auglýsinga reikningum sínum, þar á meðal hjá Meta og Google, til að tryggja fullnægjandi öryggi. MARS veitir aðstoð við uppsetningu þess skv. gildandi tímagjaldi sé þess óskað.
Hugverkaréttur og efni
Allt lokaefni sem MARS afhendir viðskiptavini, þar á meðal auglýsingatextar, hönnun, myndefni og annað afhent efni, verður eign viðskiptavinar við fulla greiðslu, nema um annað sé sérstaklega samið.
Eftirfarandi telst þó eign MARS og er ekki afhent nema með sérstöku skriflegu samkomulagi: Herferðar uppsetningar, Vinnuskjöl og frumdrög, Innri greiningargögn, Verklýsingar, aðferðir og ferlar, Sniðmát og verkfæri sem MARS hefur þróað. MARS áskilur sér rétt til að vísa til unnina verkefna í kynningarefni sínu nema viðskiptavinur óski eftir trúnaði.
Samstarf og ábyrgð viðskiptavina
Viðskiptavinur skuldbindur sig til virkrar þátttöku í samstarfi, þar á meðal að: Veita nauðsynleg gögn og upplýsingar, Afhenda efni á umsömdum tíma, Veita samþykktir og endurgjöf innan eðlilegs frests. Ábyrgð á nýtingu þjónustunnar og framkvæmd ákvarðana hvílir á viðskiptavini. MARS leggur fram tillögur, ráðleggingar og kallar eftir upplýsingum með hvetjandi hætti, en ber ekki ábyrgð á árangri ef viðskiptavinur nýtir ekki þjónustuna, bregst ekki við ráðleggingum eða tefur framgang verkefna.
Samningstími og uppsögn
Samningstími er skilgreindur í hverju tilboði eða samningi. Samningar eru að venju ótímabundnir og gilda með þriggja mánaða uppsagnarfresti, nema um annað sé samið. Uppsagnarfrestur tekur gildi frá og með fyrsta degi næsta mánaðar eftir tilkynningu.
Uppsögn skal vera skrifleg.
Reikningar, tímagjald og greiðsluskilmálar
Reikningstímabil þjónustusamninga er frá 26. degi mánaðar til 25. dags næsta mánaðar.
Tímafjöldi samkvæmt samningi er áætlaður innan hvers þjónustu tímabils. Fari rauntími umfram áætlaðan tímafjölda eru aukatímar gjaldfærðir samkvæmt gildandi tímaverði MARS hverju sinni. Ónýttir tímar milli tímabila flytjast ekki sjálfkrafa á milli nema um annað sé sérstaklega samið. Reikningar eru gefnir út samkvæmt samningi eða gildandi tímagjaldi og eru gjaldfallnir samkvæmt eindaga reiknings. Sé reikningur ekki greiddur á eindaga áskilur MARS sér rétt til að: Stöðva þjónustu án fyrirvara, Innheimta kröfuna með tilheyrandi kostnaði, Krefjast dráttarvaxta samkvæmt lögum, Stöðvun þjónustu vegna vanskila leysir viðskiptavin ekki undan greiðsluskyldu samkvæmt gildandi samningi.
Verðbreytingar
MARS áskilur sér rétt til að endurskoða verð og tímagjöld árlega. Slík árleg verðleiðrétting tekur mið af almennri kostnaðarþróun, verðlagi og launaþróun í samfélaginu og telst eðlilegur hluti af rekstrarforsendum þjónustunnar. Árleg verðleiðrétting getur tekið gildi án sérstakrar tilkynningar til viðskiptavina. Verði verulegar og ófyrirséðar breytingar á rekstrarumhverfi, svo sem vegna umtalsverðrar hækkunar á launakostnaði, þjónustukostnaði eða annarra ytri þátta, áskilur MARS sér jafnframt rétt til að endurskoða verð utan reglubundinnar árlegrar leiðréttingar. Slíkar breytingar skulu tilkynntar með hæfilegum fyrirvara.
Ábyrgðartakmörkun
MARS ber ekki ábyrgð á: Breytingum á reglum auglýsingakerfa, Lokunum eða takmörkunum reikninga, Tæknibilunum hjá þriðju aðilum, Ófyrirséðum markaðsaðstæðum.
Trúnaður
Allir aðilar að þessum samningi skuldbinda sig til að gæta trúnaðar um allar trúnaðarupplýsingar sem þeir fá aðgang að í tengslum við samstarfið. Trúnaður gildir bæði á samningstíma og eftir lok hans.
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Rísi ágreiningur milli aðila skal hann tekinn fyrir hjá Héraðsdómi Reykjaness.
(Achievements)
Awards & Recognition
Marketing Excellence Award — Best Integrated Campaign
The Drum Awards for Marketing
2025
Best Social Media Strategy
Webby Awards
2023
Top Digital Agency – Creative Innovation
Clutch Global Leaders
2024
Best Brand Identity Design
Awwwards
2024
Outstanding Use of Data & Insights
Campaign Media Awards
2024
