Abstract white background with pale yellow-green wavy band across the top and bottom edges

MARS

Algengar spurningar

Svör við algengum spurningum

  • Hvaða þjónustu býður MARS upp á?

    MARS er alhliða auglýsingastofa sem sameinar stefnumótun, hugmyndavinnu og framkvæmd. Við aðstoðum meðal annars við markaðsáætlanir, herferðir, stafrænar og innlendar birtingar, hönnun, samfélagsmiðla, efnissköpun, ljósmyndun, myndbandsgerð, Leitavélabestun og gervigreind. Þjónustan er alltaf löguð að markmiðum og þörfum hvers fyrirtækis.

  • Þarf ég að vita nákvæmlega hvað fyrirtækið mitt þarf?

    Nei. Þú þarft ekki að mæta með fullmótaða áætlun eða ákveðna hugmynd. Við byrjum alltaf á að skoða stöðuna, markmiðin og ræða hvað það er sem fyrirtækið vill ná fram. Út frá því leggjum við til skýrar aðgerðir og þá þjónustu sem raunverulega getur skilað árangri.

  • Getur MARS séð um allt markaðsstarfið okkar?

    Já. Við getum tekið utan um markaðsstarfið í heild, allt frá stefnu og áætlanagerð yfir í framkvæmd, birtingar, efnissköpun, mælingar og eftirfylgni. Markmiðið er að tengja alla þræði saman svo markaðsstarfið verði markvissara, skilvirkara og í takt við reksturinn.

  • Getið þið starfað sem ytri markaðsdeild eða markaðsstjóri?

    Já. MARS hefur mikla reynslu í að starfa sem ytri markaðsdeild eða taka að sér hlutverk ytri markaðsstjóra. Við vinnum náið með stjórnendum og starfsfólki, mótum stefnuna í sameiningu og sjáum til þess að verkefnin komist í framkvæmd. Þannig fær fyrirtækið aðgang að fjölbreyttri sérþekkingu án þess að þurfa að byggja upp heila markaðsdeild innanhúss.

  • Vinnið þið líka með fyrirtækjum sem eru með eigið markaðsteymi?

    Já. Við vinnum ýmist sem framlenging á markaðsteyminu eða tökum að okkur ákveðna þætti sem vantar tíma, þekkingu eða mannafla í. Það getur til dæmis verið stefnumótun, herferðastýring, birtingar, hönnun, efnisframleiðsla eða sérhæfð ráðgjöf.

  • Takið þið að ykkur bæði einstök verkefni og langtímasamstarf?

    Já. Við tökum að okkur allt frá einstökum herferðum og afmörkuðum verkefnum yfir í reglulegt eða langtímasamstarf. Fyrirkomulagið ræðst af verkefninu, markmiðunum og því hvers konar stuðning fyrirtækið þarf.

  • Hvernig ákveðið þið hvaða miðlar og aðgerðir henta?

    Við byrjum á markmiðunum, markhópnum og þeirri hegðun og árangri sem við viljum kalla fram. Síðan veljum við þá miðla og aðgerðir sem líklegastar eru til að skila árangri. Lausnin getur verið blanda af stafrænum auglýsingum, innlendum miðlum, efnisgerð, leitarvélabestun eða öðrum leiðum – en valið byggir alltaf á tilgangi og gögnum.

  • Hvernig mælið þið árangur markaðsstarfs?

    Við skilgreinum markmið og viðeigandi mælikvarða í upphafi og fylgjumst reglulega með árangrinum. Með réttri gagnasöfnun, greiningu og eftirfylgni sjáum við hvað virkar, hvað má bæta og hvar markaðsféð nýtist best. Mælingarnar fara alltaf eftir eðli verkefnisins og þeim árangri sem stefnt er að.

  • Hvað kostar að vinna með MARS?

    Verðið fer eftir umfangi, þjónustu og lengd samstarfsins. Einstök verkefni eru verðlögð út frá vinnu og umfangi en í langtíma samstarfi er hægt að móta fyrirkomulag sem hentar þörfum og markmiðum fyrirtækisins. Eftir fyrsta samtal leggjum við fram skýra tillögu og kostnaðaráætlun.

  • Hvernig hefst samstarfið?

    Samstarfið hefst á kynningarfundi sem er án allra skuldbindinga þar sem við kynnumst fyrirtækinu, förum yfir stöðuna og ræðum markmið og helstu áskoranir. Í kjölfarið leggjum við til næstu skref og útfærslu á samstarfi sem hentar verkefninu.

Ertu með fleiri spurningar?

Tölum saman.

Bókaðu kynningarfund og við skoðum hvernig MARS getur stutt við markaðsstarfið þitt.

Heildstæð markaðssetning

Stafræn markaðssetning

Leitarvélabestun - SEO & GEO

Grafísk hönnun

TikTok

Myndbönd & ljósmyndun

Gervigreind