þjónusta
Gervigreind
Gervigreind skapar ný tækifæri
Gervigreind er að breyta því hvernig fólk leitar að upplýsingum, velur vörur og tekur ákvarðanir. Hún skapar jafnframt ný tækifæri til að greina gögn, einfalda verkefni og þróa markaðsstarf.
MARS hjálpar fyrirtækjum að skilja þessa þróun, sjá hvar tækifærin liggja og nýta gervigreind á skýran og hagnýtan hátt.
Hvernig nýtum við gervigreind til fulls?
Hvernig stendur vefsíðan í dag ?
Greining vefsíðna fyrir gervigreindarleit
MARS greinir hvernig vefsíðan stendur gagnvart gervigreindarleit og hvort leitarvélar og gervigreindarkerfi eigi auðvelt með að finna, skilja og nýta upplýsingarnar á henni. Í kjölfarið fær fyrirtækið skýra mynd af stöðunni, tillögur að úrbótum og forgangsröðuð næstu skref.
Þjónustan getur meðal annars falið í sér
- Greiningu á efni og uppbyggingu vefsíðunnar
- Yfirferð á tæknilegri uppsetningu
- Mat á sýnileika í gervigreindarleit
- Samanburð við helstu samkeppnisaðila
- Skýra forgangsröðun á úrbótum
Hvernig aukum við sýnileikann?
Sýnileiki í gervigreindarleit
MARS hjálpar fyrirtækjum að auka sýnileika sinn í ChatGPT, Perplexity, Google AI Overviews og öðrum gervigreindarþjónustum. Markmiðið er ekki aðeins að fyrirtækið finnist heldur að vörumerkið, þjónustan og sérþekking þess komi fram í viðeigandi svörum og sé nýtt sem heimild.
Þjónustan getur meðal annars falið í sér
- Bestun fyrir gervigreindar- og svarleitarvélar
- Uppbyggingu og endurbætur á efni
- Skýrar fyrirsagnir, hnitmiðuð svör og spurninga- og svarefni
- Tæknilega uppsetningu sem auðveldar kerfum að skilja efnið (Schema markup)
- Mælingar og eftirfylgni með sýnileika
Hvernig nýtum við AI í markaðsstarfinu?
Gervigreind í markaðsstarfi
MARS nýtir gervigreind til að greina gögn, einfalda upplýsingagjöf og styðja við betri ákvarðanir í markaðsstarfi. Við fylgjum jafnframt þróun nýrra auglýsingaleiða og hjálpum fyrirtækjum að meta hvaða tækifæri henta þeirra markmiðum og starfsemi.
Þjónustan getur meðal annars falið í sér
- Greiningu á gögnum og árangri herferða
- Einfaldara aðgengi að niðurstöðum úr Meta og öðrum miðlum
- Mat og umsjón með auglýsingum í ChatGPT og á öðrum nýjum miðlum
- Bætta gagnasöfnun og áreiðanlegri mælingar
Hvernig innleiðum við tæknina í reksturinn?
Innleiðing og fræðsla
MARS hjálpar fyrirtækjum að innleiða gervigreind á einfaldan og hagnýtan hátt. Áherslan er á lausnir sem nýtast í daglegu starfi og taka mið af þörfum, verkefnum og þekkingu starfsfólks.
Þjónustan getur meðal annars falið í sér
- Fræðslu um ChatGPT, Claude og Gemini og önnur verkfæri
- Þjálfun starfsfólks og hugmyndir að hagnýtri notkun
- Þróun og einföldun verkferla
- Tengingar við tölvupóst, skjöl og önnur kerfi
- Gervigreindarspjallmenni og sérsniðnar lausnir
