Abstract light cream and beige banner with a subtle geometric corner pattern and blank center space

kynnumst betur

Um okkur

Black rounded rectangular banner shape with a slanted left edge on a white background

Við erum MARS

MARS Media er alhliða auglýsingastofa, stofnuð árið 2018. Við sköpum hugmyndir sem hreyfa við fólki og sjáum til þess að þær komist alla leið frá hugmynd að framkvæmd.

Við vinnum sem framlenging af teymi viðskiptavina okkar og tökum þátt í markaðsstarfinu frá fyrstu greiningu og stefnumótun yfir í efnissköpun, birtingar og eftirfylgni. Hjá okkur starfa sérfræðingar á ólíkum sviðum markaðsmála sem vinna náið saman að einu markmiði:

Að skapa markaðsstarf sem skilar mælanlegum árangri.


Við leggjum áherslu á að skilja reksturinn, markmiðin og fólkið á bak við hvert vörumerki. Þannig getum við séð heildarmyndina, forgangsraðað rétt og fundið lausnir sem henta hverju fyrirtæki í stað þess að fylgja sömu uppskrift fyrir alla.



Samskiptaleiðirnar eru stuttar, ábyrgðin skýr og við höfum gaman af því að koma góðum hugmyndum hratt og vel í framkvæmd. Við viljum að viðskiptavinir okkar viti alltaf hvað er í gangi, hvað gerist næst og hvers vegna.


Við erum skapandi, skipulögð og metnaðarfull. Við vinnum markvisst, fylgjumst með því hvað virkar og byggjum áfram á því. Því gott markaðsstarf snýst ekki bara um að sjást. Það þarf að hreyfa við fólki og skila árangri.

(Achievements)

Awards & Recognition

Marketing Excellence Award — Best Integrated Campaign

The Drum Awards for Marketing

2025


Best Social Media Strategy

Webby Awards

2023


Top Digital Agency – Creative Innovation

Clutch Global Leaders

2024


Best Brand Identity Design

Awwwards

2024


Outstanding Use of Data & Insights

Campaign Media Awards

2024

Teymið

Teymið okkar samanstendur af öflugu fagfólki með ólíkan bakgrunn og sérþekkingu á fjölbreyttum sviðum markaðsmála. Hver og einn kemur með sitt sérsvið að borðinu, en styrkurinn felst í því hvernig við vinnum saman, deilum hugmyndum, nýtum ólíka þekkingu og sköpum sterka heild.

Vilt þú vera með okkur í liði ? Tölum saman!