framúrskarandi þjónusta

Þjónusta

Hvað getum við gert fyrir þig?

Frá hugmynd að árangri

Við mótum hugmyndir, setjum skýra stefnu og sjáum um framkvæmdina. Hvort sem þú þarft heildstæða markaðssetningu eða aðstoð við afmarkað verkefni verður MARS hluti af teyminu þínu. Við finnum lausnir sem henta þínum markmiðum og skila árangri.

Þjónustan okkar

Heildstæð markaðssetning

MARS mótar stefnu, skipuleggur verkefnin og sér um framkvæmdina. Hvort sem þú þarft heildarumsjón eða öflugan samstarfsaðila á afmörkuðu sviði verður MARS hluti af teyminu þínu og sér til þess að markaðsstarfið vinni sem ein heild.

Stafræn markaðssetning

MARS skipuleggur og stýrir stafrænum auglýsingum á miðlum á borð við Meta, Google, Reddit, LinkedIn og ChatGPT. Með skýrum markmiðum, réttri gagnasöfnun og stöðugri bestun nýtum við auglýsingaféð þar sem það skilar mestum árangri.

Leitarvélabestun - SEO & GEO

MARS hjálpar fyrirtækjum að finnast þegar fólk leitar að þjónustu þeirra, vörum eða sérþekkingu, hvort sem leitin fer fram á Google eða með aðstoð gervigreindar. Með vönduðu efni, skýrri uppbyggingu og tæknilegri bestun styrkjum við sýnileikann til lengri tíma.

Grafísk hönnun

MARS mótar hugmyndir og býr til grafískt efni sem vekur athygli, endurspeglar vörumerkið og kemur skilaboðunum skýrt til skila. Hjá MARS vinna hönnuðir, hreyfihönnuðir og textasmiðir saman að efni fyrir stafræna miðla, vefi, auglýsingar og prent.

TikTok framleiðsla

MARS framleiðir TikTok-myndbönd sem fanga athygli og tala tungumál miðilsins. Frá hugmyndavinnu og handritum yfir í tökur, klippingu og birtingu sjáum við um efni sem fræðir, skemmtir eða selur.

Myndbönd & ljósmyndun

MARS framleiðir ljósmyndir, myndbönd, reels og annað sjónrænt efni fyrir auglýsingar, samfélagsmiðla, vefsíður, viðburði og vörukynningar. Frá fyrstu hugmynd að fullunninni afurð sjáum við um allt ferlið og tryggjum að efnið hæfi vörumerkinu og miðlinum.

Gervigreind

MARS hjálpar fyrirtækjum að nota gervigreind á skýran og hagnýtan hátt. Hvort sem markmiðið er aukinn sýnileiki í gervigreindarleit, betri nýting gagna eða innleiðing nýrra verkfæra finnum við lausnir sem henta starfseminni og nýtast í daglegu starfi.