Abstract light cream and beige banner with a subtle geometric corner pattern and blank center space

þjónusta

Leitarvélabestun - SEO & GEO

Black rounded rectangular banner shape with a slanted left edge on a white background

Leitarhegðun breytist

Leitarhegðun fólks er að breytast. Fólk leitar ekki lengur eingöngu á Google heldur fær í auknum mæli svör og ráðleggingar frá gervigreindarlausnum á borð við ChatGPT, Claude og Gemini. Fyrirtæki þurfa því að huga að sýnileika sínum á fleiri stöðum en áður.


SEO snýst um að bæta sýnileika fyrirtækja í hefðbundnum leitarvélum á borð við Google.
GEO snýst hins vegar um að gera upplýsingar um fyrirtækið skýrar, aðgengilegar og traustvekjandi svo gervigreind geti fundið þær, skilið og nýtt í svörum sínum.


Þetta eru þó ekki tvö alveg ótengd verkefni. Vandaður vefur, skýr uppbygging, tæknilegir þættir og gagnlegt efni mynda grunninn að bæði SEO og GEO. Góður sýnileiki byggist á því að svara raunverulegum spurningum markhópsins og veita upplýsingar sem bæði fólk, leitarvélar og gervigreind geta treyst.

Black rounded rectangle with a diagonal cut on the left, on a white background

MARS hjálpar fyrirtækjum að byggja upp þennan grunn og styrkja sýnileika sinn til lengri tíma. Við greinum hvað markhópurinn leitar að, hvernig fyrirtækið birtist í dag og hvar helstu tækifærin liggja. Í framhaldinu vinnum við markvisst með vefinn, efnið og tæknilega þætti sem hafa áhrif á sýnileika.


Markmiðið er einfalt: Að fyrirtækið finnist þegar fólk leitar að þeirri þjónustu, vöru eða þekkingu sem það hefur fram að færa. Sama hvort leitin fari fram á Google eða með aðstoð gervigreindar.

Leitarvélabestun

Þjónustan getur meðal annars falið í sér

  • Greiningu á núverandi sýnileika og helstu tækifærum
  • Leitarorða-, spurninga- og markhópagreiningu
  • SEO fyrir Google og aðrar hefðbundnar leitarvélar
  • GEO fyrir ChatGPT, Claude og aðrar gervigreindarlausnir
  • Bestun á uppbyggingu og innihaldi vefs
  • Gerð og þróun efnis sem svarar þörfum markhópsins
  • Tæknilegar úrbætur sem auðvelda leitarvélum og gervigreind að finna og skilja efnið
  • Mælingar, greiningar og regluleg eftirfylgni

Heildstæð markaðssetning

Stafræn markaðssetning

Leitarvélabestun - SEO og GEO

Grafísk hönnun

TikTok

Myndbönd og ljósmyndun

Gervigreind